fimmtudagur, mars 29, 2007

Pila komin aftur :) og pabbi og mamma komin í útlandið

Já Pila fór víst aðeins í smá göngutúr..var ekkert að átta sig á því að við værum öll með miklar áhyggjur af prinsessunni og því mikið dekstrað við hana þegar hún koma til baka :P...það fyrsta sem verður gert.. ól keypt á orminn..

Pabbi og mamma komu svo í dag út og komu með fullt af kræsingum með sér :)...sem og páskaegg :D og ég soddan krakki ennþá er alveg himinlifandi með eggið mitt.

Þau verða hérna í heilar tvær vikur og því yfir páskana sem er hreint alveg fullkomið.

Var svo stolt af sjálfri mér fyrir að hafa tekist að setja mynd á bloggið mitt.. greinlega ekki mjög erfitt núna þar sem ég er komin með picasa forritið...

littla systir mín er að halda eitthvað svaka íslenskt þema kvöld hér í París þann 4. apríl..hlakka til að sjá hvernig fer.. allt búið að vera á fullu út af þessu..varla hægt að spjalla við hana. :)

endilega kíkið á linkinn..og kíkið ef þið komist og eruð í parís :) http://www.myspace.com/heidab3

þriðjudagur, mars 27, 2007

píla týnd!!!

 

Litla rúsínan mín hún píla er týnd.. Tókst að komast út um glugga í gærdag í góða veðrinu og ekki komið til baka síðan. Enda ætíð verið inniköttur og meira að segja tekist að villast á ganginum á hringbrautinni ef henni tókst að fara fram á gang. Því líklegast ekki ratvísasti kötturinn Hún flutti upp í Árbæ fyrir nokkrum vikum og því allt nýtt fyrir henni og miklu auðveldara að komast út!!:).. Hún hefur enga hálsól en er eyrnamerkt "R0055". Posted by Picasa

fimmtudagur, desember 14, 2006

1. próf búið :)

Já..búin með eitt próf.. Logic & Sets svooo gaman.. Gekk ágætlega.. og því aðeins tvö próf eftir.. sem verða á föstudagin.. Fjármál og Calculus..og þá eru ekki nema 5 dagar þangað til ég kem heim :D

ÉG er reyndar að fara til Rómar á laugardagsmorguninn :D og verð til morgunins 19.des.. Hef þá 19.des í París og fer svo um morguninn 20 :)

Tíminn er búinn að líða svo hratt síðustu mánuði.. finnst eins og ég sé rétt byrjuð í prógramminu en þá er það hálfnað :S

Jæja.. þarf að fara að sofa.. vakna snemma í fyrramálið til að lesa fyrir tvö síðustu prófin sem eru ekki af léttari endanum.

A bientot mes amis

bisous

laugardagur, desember 09, 2006

Próflok

Hæ,

Já..get ekki neitað því að skólinn hefur tekið töluverða orku..Prófin byrja á mánudaginn og ég tek lokaprófin næsta föstudag, tvö þann daginn.. Fjármál og Calculus.. jibbííii..

Lífið er sem sé ekki mjög spennandi þessa dagana.. annað en að ég fer að leggja í hann heim á frónið.. :D

Reyndar eru nokkrar fréttir síðan síðasta blogg :P

Brósi og Erla eru trúlofuð og giftingin verður 14. Júlí :D ...alveg ótrúlegt.. brósi að fara að giftast!!! hmm.. þetta var víst ekki hægt að segja í gamla daga.. aðeins konurnar giftust.. but owell.. these are the days :)

Og Erla átti afmæli 5. desember s.l :) til hamingju aftur...

hmm.. ég er ekki ennþá búin að setja upp myndaalbúm eins og ég er búin að lofa að gera í milljón ár... eða allaveganna eitt ár :P og ekkert gerist..

Hey.. já þriðji tennis tíminn minn á morgun.. Er á laugardagsmornum klukkan 8:00 til 9:30 í byrjendatíma í tennis þar sem ég bý... svona rosalega gaman.. en erfitt að vakna :(


I'm sorry. But Asti is supposed to be studying instead of posting on her blog. So goodbye for now...

föstudagur, nóvember 24, 2006

Miðsannarpróflok og fl.

Engann veginn vil ég að fólk fari á hnén og biðji um fréttir...biðst innilegrar afsökunar. prófin búin og nú líður að lokaprófum og því ég endalaust stressuð.. Prófin voru hreint út sagt fjandi erfið og þarf ég að taka mig á fyrir lokaprófin.

Ég kem heim 20. des :D Hlakka svo mikið til að hitta ykkur.

París er orðin frekar köld en ennþá falleg, þótt ég hafi lítinn tíma til að líta í kringum mig.

Dóttir vinkonu minnar hún Penelope Elin er eins árs í dag 23.nóv :D innilega til hamingju með daginn sæta orðin 1 árs gömul núna...tíminn líður allt of hratt stundum. (ennþá 23.nóv í USA-inu :P)... og Vinkona mín hún Bryndís elskan á afmæli í dag. kominn 24. nóv á íslandinu:P

Bestu kveðjur til ykkar allra.
bisous,
Ásthildur

mánudagur, október 16, 2006

Fjölskyldan og próf

Sæl,

Vonandi hafið þið það gott á fróninu. Það er alveg byrjað að kólna hérna.. þó enginn snjór og ennþá hægt að labba úti á peysunni.. svona allaveganna á daginn.

Búin að fá út úr fyrsta miðsannarprófinu.. jibbí.. ég fékk A :D.. svona helv.. ánægð með það.. Vorum einhver þrjú sem fengum A.. eitthvað skrítið með kennarann.. hann gat öllum B eða B- fyrir engar villur.. kannski aðeins framsetning ekki eins og hann vildi hafa hana.. ég meina doctor í stærðfræði fékk B sem og einn með master í stærðfræði fékk A - en ég fékk A og hann sem hafði verið að fara yfir dæmin með mér deginum áður :P frekar furðulegt!!!

En núna eru öll miðsannarprófin að koma sem og eitt lokapróf!! shit.. pínu stressuð.. er að fara í eitt næsta miðvikudag.. í Industrial Organization..rífandi stuð.. Annars er ég að fara í Operuna annað kvöld sem og miðvikudagskvöldið.. Pabbi á afmæli 18.okt.. sextugur kallinn :D... Bjössi frændi átti afmæli 13. okt sem og Tryggvi á afmæli á morgun, til hamingju báðir tveir!!.. bræður Pabba :)

Jæja nóg í bili.. er að læra fyrir prófið á miðvikudaginn..

bless í bili

laugardagur, október 07, 2006

Fjölskyldan í heimsókn, próf & Nuit Blanche

Ég nú búin að taka fyrsta miðsannarprófið.. Erum búin að vera á hraðferð í Intermediate Probability og miðsannarprófið í gær. Eins endalaust stressuð og ég var fyrir prófið þá var það létt :) og hef ég ekki miklar áhyggjur af því..Þetta próf hefði getað verið svo miklu erfiðara..

Annars er vikan búin að líða ótrúlega hratt. Fór út að borða síðasta laugardag á Indverskan matsölustað, Krishna Bhavan 100% pure Végétarien, þvílíkt gott.. og alveg pakksödd og verðið ekki á verri endanum.. aðeins 9 Eur fyrir alles :)

Það er farið að kólna.. engin kynding ennþá þar sem ég bý.. verðu líklegast eftir 2 vikur.. vonandi að það verði ekki kaldara en það er nú. Annars getur það orðið virkilega heitt og notalegt veður.

Fjölskyldan að koma út eftir eina viku :D því miður verð ég að taka próf á afmælisdeginum hans pabba :'( svo koma öll miðsannarprófin og eitt lokapróf í runu þar á eftir .. dó!!! ) en þetta verður alls ekki leiðinlegt að fá þau í heimsókn :D Förum í Operuna, nýju og gömlu, efast ekki um að þetta verði snilld. Aðeins sorglegt að einn fjölskyldumeðlimur þurfi að vera eftir heima.. En það gæti orðið erfitt að hafa hana elsku Pílu með sem og koma henni aftur til Íslands.. 6 vikur í sóttkví er ekki skemmtilegur tími :P En ég held hún muni hafa það fínt heima á meðan.

Annars er ég lítið búin að gera nema að fara í tíma og læra..held ég fari og noti daginn í dag og kíki í búðir :P í dag er Nuit Blanche í París.. það er því mikið á dagskrá.. tónleikar út um allt, borginn öll lifandi alla nóttina, söfn opin allan daginn og hugsanlega um nóttina líka.. og allt frítt.

Bið að heilsa í bili, verð að nota daginn eitthvað :P

Knús og kossar